Plastlaus september er árvekniátak, sem haldið var í fyrsta sinn í september 2017. Þátttaka fór fram úr björtustu vonum og ljóst að farvegurinn er frjór þegar kemur að umhverfismálum á Íslandi. Átakið er árlegt og undirbúningsvinna stendur yfir allt árið – til dæmis með fræðslu um plastlausar lausnir á Facebook, Instagram og Snapchat, og í fyrirlestrarformi í fyrirtækjum og skólum. Átakið hefur vaxið mikið frá fyrsta árinu og æ fleiri sem eru farnir að átta sig á skaðsemi einnota plasts fyrir umhverfið.
Tilgangur verkefnisins er að vekja fólk til umhugsunar um plastnotkun og þann plastúrgang sem fellur til dagsdaglega og leita leiða til að minnka notkunina. Gríðarlegt magn af einnota plasti er urðað eða endar í hafinu sem er mikið áhyggjuefni. Allt plast sem hefur verið framleitt er enn til, það brotnar niður í smærri einingar en eyðist ekki. þ.e. það plast sem ekki hefur endað í sorpbrennslu.
Plastlaus september hvetur okkur til að nota minna af einnota plasti í september. Við getum valið hvort við tökum þátt í einn dag, eina viku, heilan mánuð eða til frambúðar.
Við hvetjum fólk til að taka þátt í Plastlausum september og vera virkt á samfélagsmiðlum.
Á þessari heimasíðu er að finna ráð til að minnka plastnotkun í daglegu lífi. Einnig er hægt að fá góð ráð um plastlausan lífstíl, hafa skoðanaskipti, koma með ábendingar og deila eigin reynslu á helstu samfélagsmiðlum átaksins sem eru eftirfarandi:
Facebook síða | Facebook hópur | Instagram | Snapchat: plastlaussept
Deilum gleðinni og munum eftir myllumerkinu #plastlaus eða #plastlausseptember
Skráðu þig í átakið svo þú teljist með! Með því að leggjast öll á eitt getum við haft áhrif.
Hér eru veggspjöld sem prenta má út og hengja upp á vinnustöðum og víðar.
Veggspjald A3 stærð: Hvað getum við gert?
Veggspjald A4 stærð: Hvað getum við gert?
Veggspjal A4 stærð: „Við tökum þátt í Plastlausum september með því að …“
Styrktu átakið
Þú getur líka styrkt átakið með því að leggja inn á reikning átaksins. Fé, sem safnast, verður notað til að vinna verkefninu aukinn liðsstyrk s.s. með auglýsingum og viðburðum.
Reikningur: 0528-26-10720
Kt.: 520717-0720