Press Enter / Return to begin your search.

Skólar á öllum stigum geta gert ýmislegt til að taka þátt í Plastlausum september, hér á síðunni má finna nokkrar leiðir til þess.

Fyrirlestrar í skólum

Plastlaus september býður stundum upp á fræðslufyrirlestra í skólum. Sendið póst á info@plastlausseptember.is með fyrirspurnir um fyrirlestra.

Veggspjöld sem prenta má út og hengja upp skólum.

Fyrsta spjaldið sýnir 30 mismunandi leiðir til að minnka plast í umhverfinu. Annað spjaldið er sérstaklega stílað á börn og sýnir 10 mismunandi leiðir fyrir börn. Síðasta spjaldið er svo hægt að fylla út með markmiðum fyrir mánuðinn og prenta svo út. Einnig er hægt að prenta það óútfyllt út og handskrifa svo inn á það.

Ertu með ábendingu eða spurningar? Taktu þátt í umræðuhópnum um Plastlausan september á Facebook eða sendu okkur tölvupóst.