Líklega eru matarinnkaup stærsta uppspretta einnota plasts sem fellur til á íslenskum heimilum. Hér eru nokkur ráð til að draga úr því:
- Notum margnota poka í stað plastpoka eða pappakassa við innkaupin.
- Veljum vöru í pappaumbúðum frekar en plastumbúðum.
- Sleppum því að setja grænmetið í plastpoka í grænmetisdeildinni eða tökum með okkur margnota poka að heiman.
- Veljum grænmeti og ávexti sem er ekki pakkað í plast.
- Kaupum stærri einingar ef við getum. Þá er hlutfall umbúðanna yfirleitt minna miðað við innihaldið. Á sama tíma þurfum við að varast það að kaupa meira en við þurfum og stuðla þannig að matarsóun.
- Veljum mjólkurvörur í fernum en ekki í plasti.
- Verslum það sem hægt er í eigin umbúðir, þ.e. farðu með eigið ílát og láttu fylla á, fleiri og fleiri verslanir eru farnar að bjóða upp á áfyllingavörur.
- Förum með eigin box í ís-, kjöt- og fiskbúðir og reynum að fá vöruna í þau í stað þess að þá hana í einnota plast- eða álboxum.
- Verslum við fiskbúðir sem afhenda fiskinn í pappabökkum en ekki plastbökkum.
- Veljum drykki í fernum frekar en í plastflöskum.
Ertu með ábendingu? Taktu þátt í umræðuhópnum um Plastlausan september á Facebook eða sendu okkur tölvupóst.