Press Enter / Return to begin your search.

Stundum stöndum við frammi fyrir vanda sem er svo stór að við vitum ekki hvernig hægt er að vinna á honum. Plastmengun í heiminum er af slíkri stærðargráðu. Eins og önnur mengun þekkir plastmengun engin landamæri; hinar afskekktu Hornstrandir þar sem enginn býr eru fullar af plasti frá útlöndum og plastruslið okkar frá Íslandi flýtur lengst norður á Svalbarða. Við erum alltaf að læra meira um plastmengun t.d. að plast eyðist ekki heldur brotnar niður í örplast sem finnst nú á hæstu fjallstindum og dýpstu sjávarálum jarðar. Það finnst líka i dýrum og drykkjarvatni á Íslandi.

Fyrir fjórum árum sátu nokkrar vinkonur á spjalli og ræddu um umhverfismál og sniðugar leiðir til að vera umhverfisvænni.. Þær veltu fyrir sér afhverju plastvandinn væri ekki tekinn fastari tökum en uppgötvuðu svo að þær gætu sjálfar gert heilmikið; þær fengu liðsauka, söfnuðu styrkjum og stofnuðu grasrótarsamtökin Plastlaus september. Plastlaus september er átaksmánuður til vekja fólk til umhugsunar um plastnotkun og þann plastúrgang sem fellur til dagsdaglega og sýnir leiðir til að minnka notkunina. Síðan þá hefur átakið vaxið og dafnað og fleiri aðilar bæst í hópinn.

Á upphafsári átaksins snerist umræðan að miklu leyti um að muna eftir fjölnota innkaupapoka í búðina en nú er það breytt og flestum finnst sjálfsagt að taka innkaupapokann með. Það er verið að innleiða bann um einnota plastpoka og plokkarar taka eftir að minna finnst af plastpokum í náttúrunni. Árið 2017 var erfitt að nálgast ýmsar plastlausar vörur hér á Íslandi eins og bambus tannbursta og hársápustykki. Núna fást umhverfisvænni tannburstar í nær hverri matvöruverslun og verslanir keppast við að bjóða umhverfisvænni kosti. Úrvalið er alltaf að aukast sérstaklega á vörum sem hægt er að fá í umbúðalausri áfyllingu sem er frábær leið til að draga úr plastnotkun.

Það eru ekki bara einstaklingar sem leita leiða til að minnka plastnotkun; snjallir fyrirtækjastjórnendur hafa hlustað á ákall markaðarins og hafa nú þegar breytt umbúðum sínum þannig að þau nota mun minna plast. Á litlu landi hafa þessar breytingar með plastpokabann og plastminni umbúðum nú þegar sparað nokkur tonn af plasti.

Við í Plastlausum september vitum að umhverfismál geta verið flókin; stundum er erfitt að meta kosti og galla ólíkra lausna og ekki hentar sama lausnin öllum. Við vitum að plast er ekki alslæmt en það er afar endingargott gott efni sem við notum í of miklum mæli í einnota vörur og umbúðir. Við vitum að það er ekki alltaf auðvelt að breyta venjum. En við erum sannfærð um að saman getum við breytt miklu, skref fyrir skref í rétta átt. Að taka þátt í Plastlausum september er góð byrjun á þeirri vegferð, saman getum við breytt til hins betra.

Kolbrún Guðríður Haraldsdóttir.

Höfundur er í stjórn grasrótarsamtakanna Plastlaus september og kennir á grænfánaleikskóla.